Réðst á blaðamann

Joel Embiid er í veseni.
Joel Embiid er í veseni. AFP/MITCHELL LEFF

Joel Embiid, leikmaður Philadelphia 76ers í NBA deildinni í körfubolta, gæti átt yfir höfði sér leikbann og sekt eftir að hann réðst á blaðamann eftir leik liðsins gegn Memphis Grizzlies í nótt.

Embiid öskraði og réðst síðan á blaðamann að nafni Marcus Hayes eftir að hann hafði skrifað grein um látinn bróður og nýfæddan son Embiid.

Greinin fjallar meðal annars um meiðslavandræði Embiid og í henni er gefið í skyn að hann sinni vinnu sinni ekki nógu vel og sé ekki í formi til að spila á hæsta getustigi.

Hayes fór mikinn í greininni og skrifar þar m.a:

„Joel Embiid hefur sagt andlát bróður síns hafa markað vendipunkt á hans ferli. Hann hefur oft sagt að hann vilji skilja eftir arfleið fyrir son sinn, sem hann skírði Marcus í höfuðið á bróður hans sem lést þegar Embiid var á fyrsta ári í NBA deildinni. En til þess að vera stórkostlegur í þínu starfi þá verður þú fyrst af öllu að mæta almennilega til vinnu.“

Þetta og meira til kom fram í greininni hjá Hayes sem hélt ekki aftur af sér þegar hann skrifaði síðar um hvað Embiid væri í lélegu formi.

Eftir leikinn í nótt, þar sem Embiid spilaði ekki og Philadelphia tapaði 124:107, labbaði Embiid upp að Hayes og öskraði á hann: „Ef þú minnist orði á bróður minn eða son aftur muntu fá að finna fyrir því og ég mun þurfa að lifa með afleiðingunum.“

Hayes baðst víst afsökunar á greinarskrifunum en Embiid vildi ekki taka við þeirri beiðni. Rifrildið hélt áfram um dágóða stund og stigmagnaðist sem endaði með því að Embiid stjakaði við Hayes og gekk burt. Tvennum sögum fer um hvort hann hafi ýtt í hann eða kýlt hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert