Hattarmenn reka sinn Bandaríkjamann

Courvoisier McCaluey, til hægri.
Courvoisier McCaluey, til hægri. Arnþór Birkisson

Bandaríkjamaðurinn Courvoisier McCauley hefur leikið sinn síðasta leik fyrir körfuboltalið Hattar á Egilsstöðum. 

Frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum. 

McCauley gekk í raðir Hattar fyrir yfirstandandi tímabil eftir dvöl í Lúxemborg. Hann lék aðeins sex leiki fyrir Hött og skoraði 18,5 stig að meðaltali í leik. 

Hattarmenn eru með þrjá sigra og þrjú töp eftir fyrstu sex leikina í úrvalsdeildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka