Tryggvi og félagar unnu riðilinn

Tryggvi Snær Hlinason í leik með Bilbao.
Tryggvi Snær Hlinason í leik með Bilbao. Ljósmynd/FIBA

Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður í körfuknattleik, og liðsfélagar hans í Bilbao tryggðu sér sigur í J-riðli Evrópubikarsins með því að leggja Prievidza örugglega að velli, 87:66, í gærkvöldi.

Bilbao vann alla sex leiki sína í riðlinum og flaug þar með áfram í milliriðla, þar sem liðið mun leika í L-riðli ásamt Cholet, Sassari og Le Portel.

Tryggvi Snær nýtti mínúturnar vel í gærkvöldi þar sem hann skoraði níu stig og tók þrjú fráköst á 17 mínútum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert