Tveimur leikjum sem áttu að fara fram í 1. deild karla í körfuknattleik í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs.
Um er að ræða leiki Þórs á Akureyri gegn KV og Sindra gegn Hamri.
Báðum leikjum hefur verið frestað um sólarhring og fara fram á morgun.
Nýir leiktímar leikjanna tveggja:
Þór Ak. - KV, laugardaginn 16. nóvember kl. 19.15
Sindri - Hamar, laugardaginn 16. nóvember kl. 17.00