Haukar unnu ótrúlegan endurkomusigur gegn Þór frá Akureyri, 94:85, í úrvalsdeild kvenna í körfubolta á Ásvöllum í dag.
Haukar eru áfram á toppnum með 10 stig eftir sex leiki en Þór er í sjöunda sæti með fjögur stig.
Þórsarar byrjuðu viðureignina betur og voru með sjö stiga forskot að loknum fyrsta leikhluta, 23:16. Annar leikhluti var jafnari en Þór náði þó að auka forskot sitt í níu stig, staðan í leikhléi var 46:37 fyrir Þór.
Þór jók forskotið í 13 stig í þriðja leikhluta og stefndi allt í þægilegan sigur Þórsara. Fjórði leikhluti var hins vegar eign Hauka sem skoruðu 34 stig gegn 12 stigum Þórs. Lokaniðurstaða 94:85-sigur Hauka.
Diamond Alexis Battles var stigahæst í leiknum með 33 stig fyrir Hauka. Lore Devos var næst stigahæst með 24 stig en hún tók einnig 11 fráköst.
Í liði Þórs voru Amandine Justine Toi og Eva Wium Elíasdóttir stigahæstar með 22 stig hvor.