Elvar öflugur í svekkjandi tapi

Elvar Már Friðriksson skoraði 16 stig í dag.
Elvar Már Friðriksson skoraði 16 stig í dag. Ljósmynd/FIBA

Íslenski landsliðsmaðurinn í körfubolta Elvar Már Friðriksson var frábær í naumu tapi gríska liðsins Maroussi gegn Lavrio, 84:80, í dag.

Maroussi er í 11. sæti af 12 með níu stig eftir sjö leiki. Lavrio er í níunda sæti með tíu stig.

Elvar skoraði 16 stig, tók þrjú fráköst og gaf fimm stoðsendingar á 29 mínútum í kvöld og var næststigahæstur hjá Maroussi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert