Stjarnan gerði frábæra ferð á Hlíðarenda og lagði þar Val að velli, 81:66, í 7. umferð úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik í kvöld.
Stjarnan er eftir sigurinn í fimmta sæti með sex stig og Valur vermir botninn með fjögur.
Stjarnan virtist vera að leggja grunninn að sigrinum strax í fyrsta leikhluta þegar staðan 29:10.
Í öðrum leikhluta gerði Valur sér hins vegar lítið fyrir og jafnaði metin í 44:44 áður en fyrri hálfleikur var úti.
Í síðari hálfleik náði Stjarnan hins vegar stjórn á leiknum og vann að lokum öruggan 15 stiga sigur.
Denia Davis-Stewart fór á kostum fyrir Stjörnuna. Hún var stigahæst alla í leiknum með 30 stig auk þess sem hún tók 17 fráköst.
Diljá Ögn Lárusdóttir bætti við 19 stigum og tíu fráköstum. Ana Clara Paz skoraði þá 17 stig.
Hjá Val var Jiselle Thomas stigahæst með 23 stig, sex fráköst og fimm stoðsendingar. Alyssa Cerino bætti við 16 stigum og tíu fráköstum.
N1-höllin á Hlíðarenda, Bónus deild kvenna, 20. nóvember 2024.
Gangur leiksins:: 2:5, 2:18, 4:26, 10:29, 14:34, 22:39, 32:42, 44:44, 48:50, 54:56, 54:58, 54:63, 54:71, 58:75, 60:79, 66:81.
Valur: Jiselle Elizabeth Valentine Thomas 23/6 fráköst/5 stoðsendingar, Alyssa Marie Cerino 16/10 fráköst, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 11, Sara Líf Boama 9/5 fráköst, Eydís Eva Þórisdóttir 4, Elísabet Thelma Róbertsdóttir 3.
Fráköst: 20 í vörn, 8 í sókn.
Stjarnan: Denia Davis- Stewart 30/17 fráköst/4 varin skot, Diljá Ögn Lárusdóttir 19/10 fráköst/6 stoðsendingar, Ana Clara Paz 17/4 fráköst, Kolbrún María Ármannsdóttir 12/5 fráköst/6 stoðsendingar, Heiðrún Björg Hlynsdóttir 2/4 fráköst, Fanney María Freysdóttir 1.
Fráköst: 31 í vörn, 12 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Jakob Árni Ísleifsson, Ingi Björn Jónsson.
Áhorfendur: 113