Landsliðskonan öflug í tapi

Danielle Rodriguez í leik með íslenska landsliðinu.
Danielle Rodriguez í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Karítas

Danielle Rodriguez, landsliðskona Íslands í körfuknattleik, átti góðan leik fyrir svissneska liðið Fribourg þegar liðið mátti sætta sig við tap fyrir Klaipedos Neptunas frá Litháen, 68:55, í D-riðli Evrópubikarsins i kvöld.

Danielle skoraði 11 stig, tók tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar á 31 mínútu hjá Fribourg.

Liðið er í öðru sæti D-riðils með sex stig og er langt komið með að tryggja sér sæti í 24-liða úrslitum keppninnar þegar aðeins ein umferð er óleikin í riðlakeppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert