Ísland leikur þriðja leikinn af sex í undankeppni Evrópumóts karla í körfubolta í kvöld þegar Ítalir koma í heimsókn í Laugardalshöllina þar sem flautað verður til leiks klukkan 19.30.
Eftir tvær umferðir eru Ítalir með fjögur stig, Tyrkland og Ísland tvö stig en Ungverjaland ekkert. Ísland vann Ungverjaland 70:65 og tapaði afar naumlega í Tyrklandi, 76:75, í fyrstu tveimur leikjunum sem fram fóru í febrúar.
Þrjú efstu liðin komast á EM 2025 og því er nokkuð ljóst að ítalska liðið er á leið þangað. Ísland mætir Ítölum tvisvar á fjórum dögum því seinni leikurinn fer fram í Reggio Emilia á mánudagskvöldið.
Ljóst er að Ísland mun mæta tveimur ólíkum ítölskum liðum í þessum tveimur leikjum. Gianmarco Pozzecco, þjálfari Ítala, er með 15 manna hóp fyrir leikinn í Höllinni í kvöld en fær mikinn liðsauka fyrir leikinn á mánudagskvöldið þegar sex leikmenn sem spila með liðum í Evrópudeildinni (Euroleague) bætast í hópinn.
Leikið er í Evrópudeildinni í kvöld og fá leikmenn þaðan alla jafna ekki að spila í leikjum á vegum FIBA. Ítalir náðu þó að semja um að geta notað þrjá leikmenn frá ítölsku liðunum Olimpia Mílanó og Bologna í Laugardalshöllinni í kvöld.
Ítalir voru með sterkasta lið sitt í sumar þegar þeir léku á lokastigi undankeppninnar fyrir Ólympíuleikana þar sem þeir töpuðu úrslitaleikjum gegn Púertó Ríkó og Litháen og náðu ekki að komast til Parísar.
Greinina í heild sinni má nálgast á íþróttasíðum Morgunblaðsins sem kom út í morgun.