Gamla ljósmyndin: Leikstjórnandi „par excellence“

Íþrótta­deild Morg­un­blaðsins og mbl.is held­ur áfram að gramsa í mynda­safni Morg­un­blaðsins og birta á mbl.is á laug­ar­dög­um. 

Á níunda áratugnum stóð karlalið Keflavíkur í skugganum af nágrönnum sínum í Njarðvík ef þannig má að orði komast. Eða þar til 1989 þegar Keflavík varð Íslandsmeistari karla. Endurtók liðið leikinn 1992 og 1993. 

Keppnistímabilið 1988-1989 tók Jón Kr. Gíslason við þjálfun liðsins á miðju tímabili og varð Íslandsmeistari sem spilandi þjálfari. Hann var einnig spilandi þjálfari 1992 og 1993. Síðar varð Jón Kr. landsliðsþjálfari karla 1995-1999 og stýrði báðum A-landsliðunum árið 1998.

Á þjálfaraferlinum stýrði Jón Kr. einnig kvennaliðum Njarðvíkur og Keflavíkur og karlaliði Stjörnunnar. Þar dró hann einnig fram skóna tæplega fertugur og lék með Stjörnunni. Þá má geta þess að þegar Jón Kr. var landsliðsþjálfari fékk Fylkir hann að láni sem þjálfara frá KKÍ en fjárhagsstaða körfuknattleiksdeildar Fylkis var þá bágborin og var barist við að halda starfinu gangandi. 

Sem leikmaður lék Jón Kr. lengst af með Keflavík en sitt hvort tímabilið með Grindavík og Stjörnunni. Í Danmörku lék hann eitt tímabil með SISU og varð danskur bikarmeistari. Jón Kr. leikstjórnandi par excellence. Stjórnaði leiknum og sá einkar glögglega það sem var að gerast í kringum hann á vellinum enda var hann sjö sinnum með flestar stoðsendingar á einu tímabili á Íslandsmótinu.

Var hann fjórum sinnum kjörinn leikmaður ársins af andstæðingum sínum í deildinni. Var Jón valinn í lið 20. aldarinnar hjá KKÍ um aldamótin. 

Fyrir þá sem hafa gaman af ættfræði hafa þrír sona Jóns leikið í efstu deild í körfunni: Dagur Kár, Daði Lár og Dúi Þór. 

Á meðfylgjandi mynd er Jón að keyra upp að körfunni í vináttulandsleik gegn Eistlandi á Hlíðarenda í maí árið 1993 en myndina tók Kristinn Ingvarsson sem myndaði fyrir Morgunblaðið og mbl.is í áratugi. Eistar höfðu naumlega betur 93:91 og skoraði Jón 14 stig í leiknum.

Jón Kr. Gíslason er þriðji leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi með 158 A-landsleiki.

Íslenska karlalandsliðið mætir Ítalíu ytra á mánudagskvöldið en liðin mættust í Laugardalshöll í gærkvöldi í undankeppni EM. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert