Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er á meðal áhorfenda á leik Ítalíu og Íslands í undankeppni EM karla í körfubolta í kvöld.
Albert spilar með Fiorentina á Ítalíu og nýtti tækifærið. Fyrir leik færði hann Armedeo Tessitori leikmanni Ítala Fiorentina-treyju og fékk ítalska landsliðstreyju í staðinn.
Körfuknattleikssamband Ítalíu vakti athygli á treyjuskiptunum á Instagram-síðu sinni í kvöld.