Haukar eru einir á toppi úrvalsdeildar kvenna í körfubolta eftir sigur á Keflavík, 100:83, á heimavelli sínum í Ólafssal í Hafnarfirði í kvöld.
Haukar eru nú með 14 stig, tveimur stigum meira en Njarðvík og fjórum meira en Keflavík.
Keflavík var með eins stigs forskot eftir fyrsta leikhluta, 22:21. Haukar voru sterkari í öðrum leikhluta og voru hálfleikstölur 47:42, Haukum í vil.
Haukar unnu þriðja leikhlutann 24:21 og svo fjórða og síðasta leikhlutann 29:20 og var sigurinn sannfærandi að lokum.
Diamond Battles skoraði 27 stig og tók tíu fráköst fyrir Hauka. Lore Devos bætti við 25 stigum.
Jasmine Dickey skoraði 31 stig og tók 12 fráköst fyrir Keflavík og Thelma Dís Ágústsdóttir gerði 17 stig.