Franska ungstirnið Victor Wembanyama hefur heldur betur farið vel af stað með liði sínu San Antonio Spurs í bandarísku NBA-deildinni í körfubolta.
San Antonio hefur unnið tíu leiki og tapað átta sem af er tímabils. Það er stórbæting frá því í fyrra þegar liðið var með þeim verri.
Wembanyama, sem er aðeins tvítugur, er á sínu öðru tímabili í San Antonio en tölfræði hans úr síðustu fimm leikjum er mögnuð.
Hann er með 34 stig, 9,6 fráköst, 4,8 stoðsendingar og 2,8 varin skot að meðaltali í síðustu fimm leikjum sínum.
Þá er skotnýting hans 54% og þriggja stiga nýtingin 41%.