Körfuknattleiksdeild Hamars/Þórs hefur samið við þær Huldu Ósk Bergsteinsdóttur og Fanneyju Ragnarsdóttur. Koma þær báðar til Hamars/Þórs frá Ármanni.
Hulda er 25 ára miðherji og Fanney 28 ára bakvörður. Þá hefur samningi Teresu Soniu Da Silva verið rift.
Yfirlýsing Hamars/Þórs:
Hulda Ósk Bergsteinsdóttir er 25 ára miðherji sem kemur með góða reynslu inn í liðið okkar. Hún spilaði með Þór Akureyri í úrvalsdeildinni síðasta leiktímabil og hóf þetta leiktímabil með Ármanni áður en hún færði sig yfir til okkar. Þar áður hefur hún spilað fyrir KR og Njarðvík. Hulda Ósk er sterk undir körfunni og kemur til með að styrkja okkur vel í baráttunni þar undir, bæði í vörn og sókn.
Fanney Ragnarsdóttir er 28 ára bakvörður sem kemur einnig til okkar frá Ármanni. Fanney er reynslumikill leikmaður bæði úr 1. deild og úrvalsdeild. Hún hefur lengst af spilað með Fjölni og KR, en spilaði síðasta tímabil og byrjun þessa tímabils með Ármanni í 1. deildinni. Fanney er kraftmikill leikmaður sem mun styrkja liðið okkar vel í baráttunni í vetur.
Við bjóðum þær Huldu Ósk og Fanneyju velkomnar í Hamar/Þór.