Þriðji sigur Aþenu í efstu deild

Dzana Crnac og stöllur í Aþenu unnu sinn þriðja sigur.
Dzana Crnac og stöllur í Aþenu unnu sinn þriðja sigur.

Aþena hafði betur gegn Grindavík, 75:67, í úrvalsdeild kvenna í körfubolta í kvöld. Aþena er nú með sex stig, eins og Grindavík, Stjarnan og Hamar/Þór.

Liðin eru í 6.-9. sæti, tveimur stigum á undan botnliði Vals og tveimur á eftir Þór og Tindastóli í fjórða og fimmta sæti.

Ajulu Thatha var stigahæst hjá Aþenu með 16 stig. Dzana Crnac kom næst með 15.

Katarzyna Anna Trzeciak skoraði 15 stig fyrir Grindavík og Sofie Tryggedsson og Isabella Ósk Sigurðardóttir komu næstar með tólf stig hvor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka