Selfyssingar með nýjan þjálfara

Bjarmi Skaphéðinsson og Geir Helgason taka við þjálfum meistaraflokks karla …
Bjarmi Skaphéðinsson og Geir Helgason taka við þjálfum meistaraflokks karla hjá Selfossi. Ljósmynd/Selfoss

Körfuknattleiksdeild Selfoss hefur ráðið Bjarma Skarphéðinsson sem þjálfara karlaliðs félagsins. Hann tekur við af Árna Þór Hilmarssyni sem sagði upp störfum á dögunum vegna veikinda.

Bjarmi þekkir körfuboltann á Selfossi vel. Hann hefur undanfarin ár þjálfað 10.-12. flokk drengja og verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks.

Geir Helgason verður aðstoðarþjálfari Bjarma, en þeir hafa unnið saman hjá körfuknattleiksdeildinni að undanförnu.

Selfoss er í tíunda sæti af tólf liðum í 1. deild með fjögur stig eftir átta leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka