Elvar drjúgur í sigri

Elvar Már Friðriksson átti góðan leik í dag.
Elvar Már Friðriksson átti góðan leik í dag. Ljósmynd/FIBA

Elvar Már Friðriksson og félagar í Maroussi sigruðu Promitheas, 63:76, í efstu deild gríska körfu­bolt­ans í dag.

Njarðvíkingurinn skoraði 14 stig, tók fjögur fráköst og gaf fjórar stoðsendingar á 26:21 mínútum í sigrinum.

 Maroussi er 11. og næstneðsta sæti með 15 stig eftir 12 leiki en Promitheas er í fjórða sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka