Landsliðskona fær leikheimild hjá Haukum

Sigrún Björg Ólafsdóttir í leik með Haukum á sínum tíma.
Sigrún Björg Ólafsdóttir í leik með Haukum á sínum tíma. Haraldur Jónasson/Hari

Körfuknattleikskonan Sigrún Björg Ólafsdóttir hefur fengið leikheimild hjá uppeldisfélagi sínu Haukum eftir að hafa leikið í bandaríska háskólaboltanum undanfarin ár.

Sigrún Björg, sem á sjö landsleiki að baki fyrir Íslands hönd, er 23 ára gömul og leikur í stöðu bakvarðar.

Þrátt fyrir að hafa formlega fengið leikheimild fyrir fjórum dögum sagði Kristinn Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, í stuttu samtali við mbl.is að ekkert væri ákveðið í þeim efnum hvort Sigrún Björg spili með liðinu á tímabilinu.

Hún sé enn við nám í Tennessee-háskóla í Bandaríkjunum þar sem Sigrún Björg leikur með liði Chattanooga Mocs, og einbeiti sér að því en sem uppalin Haukakona sé hún vitanlega ávallt velkomin aftur til félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert