Valur vann Stjörnuna, 85:84, í æsispennandi leik í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik í Garðabæ í kvöld.
Mikilvæg stig voru í húfi því liðin eru baráttu við Tindastól um að ná fimmta sætinu og vera þar með í efri hlutanum í seinni hluta mótsins þegar hefðbundinni tvöfaldri umferð lýkur. Tindastóll er með 16 stig í fimmta sæti og er núna að spila við Keflavík, Valur er kominn með 14 stig í sjötta sæti og Stjarnan er með 12 stig í sjöunda sætinu en tvær umferðir eru eftir
Valskonur voru yfir, 26:21, eftir fyrsta leikhluta og 45:41 í hálfleik. Spennan hélst í seinni hálfleiknum, staðan eftir þriðja leikhluta var 67:64, Val í hag, og allt var galopið á lokakaflanum.
Stjarnan komst yfir, 78:77, þegar rúmlega þrjár mínútur voru eftir og síðan voru liðin með forystuna til skiptis. Ásta Júlía Grímsdóttir kom Val í 85:84 þegar 53 sekúndur voru eftir og það reyndist sigurkarfan því skottilraunir liðanna á lokakaflanum mistókust allar.
Alyssa Cerino skoraði 21 stig fyrir Val, Jiselle Thomas 17 og Anna Maria Kolyandrova 15 en Alyssa tók auk þess 12 fráköst.
Denia Davis-Stewart skoraði 23 stig fyrir Stjörnuna og tók 10 fráköst og Katarzyna Anna Trzeciak var með 17 stig og 11 fráköst.
Gangur leiksins:: 6:6, 11:11, 16:15, 21:26, 31:30, 33:35, 37:37, 41:45, 47:50, 51:57, 53:63, 64:67, 67:71, 72:77, 79:80, 84:85.
Stjarnan: Denia Davis- Stewart 23/10 fráköst, Katarzyna Anna Trzeciak 17/11 fráköst, Ana Clara Paz 15, Diljá Ögn Lárusdóttir 11/4 fráköst, Berglind Katla Hlynsdóttir 9, Elísabet Ólafsdóttir 6, Bára Björk Óladóttir 3.
Fráköst: 20 í vörn, 12 í sókn.
Valur: Alyssa Marie Cerino 21/12 fráköst, Jiselle Elizabeth Valentine Thomas 17, Anna Maria Kolyandrova 15/4 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 10/5 fráköst, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 9, Ásta Júlía Grímsdóttir 8, Elísabet Thelma Róbertsdóttir 3, Eydís Eva Þórisdóttir 2.
Fráköst: 26 í vörn, 6 í sókn.
Dómarar: Davíð Kristján Hreiðarsson, Birgir Örn Hjörvarsson, Federick Alfred U Capellan.
Áhorfendur: 150