Stjarnan, toppliðið í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, hefur fengið í sínar raðir reyndan slóvenskan landsliðsmann, Jaka Klobucar.
Hann er 37 ára gamall og lék m.a. með slóvenska landsliðinu í lokakeppni EM árið 2015, er 198 sm hár og leikur sem bakvörður eða framherji.
Klobucar lék síðast með Olimpija Ljubljana í heimalandi sínu en hefur annars víða komið við á ferlinum og m.a. spilað í Ungverjalandi, Grikklandi, Tyrklandi, Þýskalandi, Ítalíu og Serbíu.
Hann hefur þrisvar orðið slóvenskur meistari með Karka og fjórum sinnum bikarmeistari með Krka og Olimpija, sem og bikarmeistari í Serbíu með Partizan Belgrad.