Njarðvík í þriðja sætið

Brittany Dinkins skoraði 28 stig fyrir Njarðvík.
Brittany Dinkins skoraði 28 stig fyrir Njarðvík. mbl.is/Karítas

Njarðvík gerði góða ferð til Þorlákshafnar og lagði þar nýliða Hamars/Þórs, 106:93, í 16. umferð úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik í kvöld.

Með sigrinum fór Njarðvík upp í þriðja sæti þar sem liðið er með 22 stig líkt og Keflavík sæti neðar.

Brittany Dinkins var stigahæst hjá Njarðvík með 28 stig og níu stoðsendingar ásamt því að stela boltanum fjórum sinnum.

Stigahæst í leiknum var hins vegar Abby Beeman með 30 stig fyrir Hamar/Þór. Hún gaf auk þess 11 stoðsendingar og stal boltanum tvisvar sinnum.

Hamar/Þór - Njarðvík 93:106

Icelandic Glacial höllin, Bónus deild kvenna, 29. janúar 2025.

Gangur leiksins: 2:7, 6:11, 14:18, 21:25, 29:31, 36:38, 44:49, 46:56, 56:58, 65:64, 72:74, 74:77, 77:78, 85:90, 87:101, 93:106.

Hamar/Þór: Abby Claire Beeman 30/11 stoðsendingar, Hana Ivanusa 20, Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir 19, Jóhanna Ýr Ágústsdóttir 8, Anna Soffía Lárusdóttir 6, Gígja Rut Gautadóttir 5/4 fráköst, Kristrún Ríkey Ólafsdóttir 3/4 fráköst, Hulda Ósk Bergsteinsdóttir 2.

Fráköst: 18 í vörn, 4 í sókn.

Njarðvík: Brittany Dinkins 28/4 fráköst/9 stoðsendingar, Paulina Hersler 20/5 fráköst, Emilie Sofie Hesseldal 17/14 fráköst/5 stolnir, Hulda María Agnarsdóttir 16/5 stoðsendingar, Krista Gló Magnúsdóttir 10, Sara Björk Logadóttir 6, Kristín Björk Guðjónsdóttir 6, Lára Ösp Ásgeirsdóttir 3.

Fráköst: 14 í vörn, 14 í sókn.

Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Gunnlaugur Briem, Elías Karl Guðmundsson.

Áhorfendur: 150.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert