Álftanes fór illa með ÍR

Justin James skoraði 34 stig fyrir Álftanes í kvöld.
Justin James skoraði 34 stig fyrir Álftanes í kvöld. mbl.is/Karítas

Álftanes gerði góða ferð í Breiðholt og lagði ÍR örugglega að velli, 94:75, í 16. umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í kvöld.

Álftanes og ÍR eru nú bæði með 14 stig; Álftanes í sjötta sæti og ÍR í því tíunda.

Álftanes byrjaði vel og var níu stigum yfir, 23:14, að loknum fyrsta leikhluta. Gestirnir bættu enn frekar í og var staðan í hálfleik 49:33.

Í síðari hálfleik var Álftanes áfram með undirtökin til að byrja með og komst 20 stigum yfir í stöðunni 58:38. Þá bitu Breiðhyltingar í skjaldarrendur og náðu að minnka muninn í átta stig, 69:61, í lok þriðja leikhluta.

Þá fór í hönd fjórði leikhluti þar sem ÍR minnkaði muninn fljótlega niður í aðeins fjögur stig, 71:67. Álftanes fann hins vegar aftur fjölina, náði góðu forskoti á ný og vann að lokum með 19 stigum.

Justin James fór hamförum hjá Álftanesi en hann skoraði 34 stig, tók fimm fráköst og gaf níu stoðsendingar. David Okeke átti sömuleiðis stórleik og skoraði 27 stig auk þess að taka 13 fráköst.

Oscar Jörgensen var atkvæðamestur hjá ÍR með 23 stig.

ÍR - Álftanes 75:94

Skógarsel, Bónus deild karla, 30. janúar 2025.

Gangur leiksins:: 4:6, 7:11, 9:15, 14:23, 16:27, 24:34, 29:42, 33:49, 37:52, 41:58, 50:62, 61:69, 67:72, 71:78, 71:84, 75:94.

ÍR: Oscar Jorgensen 23/4 fráköst, Jacob Falko 16/6 fráköst/7 stoðsendingar, Matej Kavas 9/6 fráköst, Zarko Jukic 8/9 fráköst, Dani Koljanin 8/4 fráköst, Hákon Örn Hjálmarsson 6/6 stoðsendingar, Tómas Orri Hjálmarsson 3, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 2.

Fráköst: 24 í vörn, 10 í sókn.

Álftanes: Justin James 34/5 fráköst/9 stoðsendingar, David Okeke 27/13 fráköst, Dimitrios Klonaras 15/11 fráköst, Haukur Helgi Briem Pálsson 11/6 fráköst, Viktor Máni Steffensen 4, Hörður Axel Vilhjálmsson 3.

Fráköst: 26 í vörn, 13 í sókn.

Dómarar: .

Áhorfendur: 389

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert