Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við Nigel Pruitt og mun hann leika með liðinu út yfirstandandi tímabil.
Pruitt er Bandaríkjamaður með þýskt vegabréf. Hann þekkir körfuboltann á Íslandi ágætlega en hann lék með Þór frá Þorlákshöfn á síðustu leiktíð og skoraði 18 stig, tók sjö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar að meðaltali í leik.
Keflavík er í 7. sæti úrvalsdeildarinnar með 14 stig eftir 15 leiki en fimm af tólf liðum deildarinnar eru með sama stigafjölda.