Tveimur leikjum í 1. deild karla í körfuknattleik sem áttu að hefjast klukkan 19.15 í kvöld hefur seinkað til klukkan 20 vegna veðurs.
Um er að ræða leiki Fjölnis gegn Hamri í Grafarvogi og Selfoss gegn KV á Selfossi.
Seinkunin kemur til vegna þess að Hellisheiði er lokuð en í tilkynningu frá KKÍ kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni eigi að opna aftur fyrir umferð síðar í dag.