Martin með flottan leik í Belgrad

Martin Hermannsson var í stóru hlutverki hjá Alba Berlín í …
Martin Hermannsson var í stóru hlutverki hjá Alba Berlín í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Martin Hermannsson, fyrirliði þýska körfuknattleiksliðsins Alba Berlín, átti stórgóðan leik í Belgrad í kvöld þegar Alba lagði þar Maccabi Tel Aviv frá Ísrael að velli í Evrópudeildinni, Euroleague, 93:87.

Martin náði tvöfaldri tvennu á 20 mínútum því hann skoraði 11 stig og átti 11 stoðsendingar fyrir Alba, auk þess sem hann tók tvö fráköst. Hann átti elleftu stoðsendinguna þegar enn voru tæpar fimm mínútur af leiknum, og Alba náði tíu stiga forystu en fór siðan af velli og spilaði ekkert á lokakaflanum.

Sigurinn er kærkominn fyrir lið Alba, aðeins sá fjórði í 24 leikjum í vetur í þessari sterkustu deild Evrópu, en Maccabi Tel Aviv er einmitt næsta lið fyrir ofan í töflunni með sex sigurleiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert