Einn nýliði er í landsliðshópi Íslands í körfubolta fyrir útileiki gegn Tyrklandi og Slóvakíu í undankeppni EM kvenna í körfubolta. Kristrún Ríkey Ólafsdóttir, leikmaður Hamars/Þórs, er í hópnum í fyrsta skipti.
Ísland leikur gegn Tyrklandi 6. febrúar og gegn Slóvakíu þremur dögum síðar. Tyrkland er í toppsæti riðilsins með átta stig, Slóvakía í öðru með fjögur og Rúmenía og Ísland koma næst með tvö hvort.
Tólf manna hópur Íslands:
Anna Ingunn Svansdóttir - Keflavík 12 leikir
Agnes María Svansdóttir – Keflavík 4 leikir
Dagbjört Dögg Karlsdóttir - Valur 22 leikir
Danielle Rodriquez - Fribourg 2 leikir
Diljá Ögn Lárusdóttir - Stjarnan 8 leikir
Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir – Hamar/Þór 4 leikir
Eva Wium Elíasdóttir - Þór Akureyri 4 leikir
Kristrún Ríkey Ólafsdóttir – Hamar/Þór – Nýliði
Sara Rún Hinriksdóttir – Keflavík 30 leikir
Thelma Dís Ágústsdóttir - Keflavík 22 leikir
Þóra Kristín Jónsdóttir - Haukar 35 leikir
Tinna Guðrún Alexandersdóttir - Haukar 8 leiki