Leik Hauka og Þórs frá Þorlákshöfn í úrvalsdeild karla, sem átti að hefjast klukkan 19 í Ólafssal að Ásvöllum í kvöld, hefur verið frestað.
Ástæðan er leki úr þaki niður á leikvöllinn í Ólafssal sem kemur til vegna þess slagviðris sem nú geisar hvarvetna um landið.
Leiknum hefur þegar verið fundinn nýr leiktími. Fer hann nú fram klukkan 17 á sunnudaginn 2. febrúar.