Grískur landsliðsmaður í Skagafjörðinn

Dimitris Agravanis í leik með Grikklandi á EM 2022.
Dimitris Agravanis í leik með Grikklandi á EM 2022. Ljósmynd/FIBA

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur gengið frá samningi við gríska landsliðsmanninn Dimitris Agravanis. Hann kemur til félagsins frá Neptunas Klaipeda í Litháen. Dimitris er eldri bróðir Giannis Agravanis sem hefur leikið með Tindastóli í vetur.

Er um mikinn liðstyrk fyrir Tindastól að ræða því Dimitris er reynslumikill leikmaður og hefur leikið með gríska landsliðinu í áraraðir. Gríska liðið er eitt það sterkasta í Evrópu.

Lék framherjinn gegn Íslandi á EM 2017 og skoraði 6,3 stig að meðaltali í leik með Grikklandi á EM 2022. Þá hefur hann í tvígang orðið grískur meistari og var valinn í úrvalslið grísku deildarinnar árið 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert