Senda bandarískan leikmann heim

Sherif Ali Kenney, rauðklæddur, í leik með Val gegn ÍR …
Sherif Ali Kenney, rauðklæddur, í leik með Val gegn ÍR í vetur. mbl.is/Arnþór Birkisson

Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Sherif Ali Kenney er á förum frá Valsmönnum eftir að hafa komið til þeirra fyrir yfirstandandi tímabil.

Vísir greinir frá þessu en eftir að Joshua Jefferson fór að spila með Val á ný eftir krossbandsslit núna í janúar voru Valsmenn með tvo bandaríska leikmenn í sínum röðum og gátu samkvæmt reglum KKÍ aðeins verið með annan þeirra innan vallar í einu.

Kenney skoraði tæp 11 stig að meðaltali í leik fyrir Valsmenn í sextán leikjum í úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert