Bandaríkin fá vetrarólympíuleikana

Thomas Bach forseti Alþjóða ólympiunefndarinnar staðfestir valið á Salt Lake …
Thomas Bach forseti Alþjóða ólympiunefndarinnar staðfestir valið á Salt Lake City. AFP/Natacha Pisaraenko

Bandaríska borgin Salt Lake City heldur vetrarólympíuleikana árið 2034 en það var frágengið með kosningu á fundi Alþjóða ólympíunefndarinnar í París í dag.

Þetta verður í annað sinn sem borgin heldur vetrarleikana en þeir voru haldnir þar árið 2002. Þegar lá fyrir að engin önnur borg kæmi til greina og Salt Lake City, höfuðborg Utah-ríkis, fékk 83 atkvæði af 89 á fundinum.

Næstu leikar fara fram á Ítalíu, í Mílanó og Cortina d'Ampezzo, árið 2026 og leikarnir árið 2030 fara fram í Ölpunum í Frakklandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert