Sannfærandi sigur þýsku kvennanna

Þýska liðið fagnar einu marka sinna gegn Ástralíu í kvöld.
Þýska liðið fagnar einu marka sinna gegn Ástralíu í kvöld. AFP/ Christophe Simon

Þýska kvennalandsliðið í knattspyrnu hóf Ólympíuleikana af miklum krafti í kvöld og sigraði Ástralíu örugglega, 3:0, í fyrsta leik sínum.

Marina Hegering skoraði í fyrri hálfleik og þær Lea Schüller og Jule Brand um miðjan síðari hálfleik. Giulia Gwinn lagði upp tvö fyrri mörkin.

Bandaríkin og Sambía eru í sama riðli og þar er staðan 3:0, bandaríska liðinu í vil, eftir 40 mínútna leik.

Brasilia vann Nígeríu, 1:0, í C-riðli en þar unnu spænsku heimsmeistararnir sigur á Japan fyrr í dag, 2:1. Marta lagði upp sigurmark Brasilíu fyrir Gabi Nunes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert