Íslendingar í dómgæslu á ÓL í París

Hlín Bjarnadóttir og Björn Magnús Tómasson
Hlín Bjarnadóttir og Björn Magnús Tómasson Ljósmynd/FSÍ

Ísland á tvo fulltrúa í fimleikakeppni Ólympíuleikanna í París. Ekki þó keppendur heldur í röðum dómara.

Það eru Björn Magnús Tómasson, sem dæmir á sínum fimmtu Ólympíuleikum, og Hlín Bjarnadóttir sem er á sínum öðrum leikum sem dómari.

Björn tekur til starfa strax á morgun þegar hann dæmir í hringjum í undankeppni karla.

Nánar á heimasíðu Fimleikasambands Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert