Leikmaður Tindastóls sigldi niður Signu

Nígería og Noregur sigldu saman niður Signu í kvöld.
Nígería og Noregur sigldu saman niður Signu í kvöld. AFP/Sebastien Bozon

Leikmaður körfuknattleiksliðs Tindastóls sigldi niður ána Signu í kvöld sem einn af þátttakendunum í Ólympíuleikunum í París.

Það er Ifunanya Okoro, landsliðskona Nígeríu, sem hjálpaði liði Tindastóls í vetur til að vinna  sér sæti í úrvalsdeildinni.

Hún er 25 ára gömul og hefur tvívegis unnið til gullverðlauna á Afríkumótum með landsliði Nígeríu. Hún kom til Tindastóls fyrir ári síðan frá Kenya Ports.

Ifunanya Okoro í leik með Tindastóli í úrslitakeppninni í vetur.
Ifunanya Okoro í leik með Tindastóli í úrslitakeppninni í vetur. mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert