Biles mun frumsýna nýja æfingu

Simone Biles á tvíslá á æfingu á dögunum.
Simone Biles á tvíslá á æfingu á dögunum. AFP/Loic Venance

Bandaríska fimleikakonan Simone Biles hefur sótt um að fá nýja æfingu nefnda eftir sér á ÓLympíuleikunum í París en hún á nú þegar fimm slíkar æfingar. 

Æfingar eru nefndar í höfuðið á fyrsta einstaklingnum sem framkvæmir æfingu á stórmóti án mikilla galla eða falls

Þessi er framkvæmd á tvíslá en Biles mun fara hring í kringum tvíslána beint fara upp í handstöðu og snúa einn og hálfan hring (540 gráður) sem er útfærsla af æfingu sem er nefnd eftir Wilhelm Weiler sem Biles hefur oft framkvæmt.  

Það eru þegar tvær æfingar á gólfi, afstökk á slá og tvö stökk nefnd í höfuðið á henni í dómarabókinni.

Biles og bandaríska liðið keppir í undankeppni í fjölþraut kvenna klukkan 9:40 að íslenskum tíma á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert