Dagur: Get verið stoltur af báðum liðum

Dagur Sigurðsson á hliðarlínunni í dag.
Dagur Sigurðsson á hliðarlínunni í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Þetta er léttir, miðað við hvernig staðan var orðin. Þetta hafðist á síðustu sekúndunum. Þetta var ótrúlegur leikur,“ sagði Dagur Sigurðsson þjálfari karlaliðs Króatíu í handbolta í samtali við mbl.is eftir 30:29-sigur á Japan í 1. umferð A-riðils Ólympíuleikanna í París.

Króatíska liðið var mikið mun sigurstranglegra fyrir leik, en lenti í vandræðum með sprækt japanskt lið. Japan var 4-5 mörkum yfir undir lok fyrri hálfleiks og framan af þeim seinni. 

„Það var einhver stórmótaskjálfti í þeim sem við þurfum að ná að hrista af okkur,“ sagði Dagur.

Staðan var 29:29 þegar mínúta var eftir og Japan með boltann. Japönum mistókst að skora sigurmarkið og hinum megin var Ivan Martinovic hetja króatíska liðsins.

„Þeir fá í rauninni tvo sénsa til að vinna þetta. Stundum dettur þetta aðeins með manni. Allt í allt þá átti Japan meira skilið. Ég get verið stoltur af báðum liðum,“ sagði hann.

Dagur stýrði japanska liðinu frá 2017 og þar til í febrúar á þessu ári. Fáir þekkja því japanskan handbolta eins vel og fyrrverandi landsliðsfyrirliðinn.

„Það skiptir máli hvað ég þekki þá vel, en það virðist ekki hafa skilað sér,“ sagði Dagur kíminn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert