Fyrstu gullverðlaun Þjóðverja

Lukas Martens er Ólympíumeistari í 400 metra skriðsundi karla.
Lukas Martens er Ólympíumeistari í 400 metra skriðsundi karla. AFP/Sebastien Bozon

Þjóðverjinn Lukas Martens er Ólympíumeistari í 400 metra skriðsundi eftir að hafa komið fyrstu í mark í París í Frakklandi í dag. 

Martens vann með yfirburðum en annar í mark var Elijah Winnington frá Ástralíu og sá þriðji Kim Woo-min frá Suður-Kóreu. 

Þetta voru fyrstu gullverðlaun Þjóðverja á þessum Ólympíuleikum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka