Kína hreppti fyrstu gullverðlaunin á ÓL í París

Huang Yuting og Sheng Lihao með gullverðlaunin í dag.
Huang Yuting og Sheng Lihao með gullverðlaunin í dag. AFP/Alain Jocard

Huang Yuting og  Sheng Lihao, frá Kína, hrepptu fyrstu gullverðlaunin á Ólympíuleikunum í París í dag.

Þau kepptu í 10 metra skotfimi í blönduðum liðum og fengu medalíuna í morgun en þau eru nú tvöfaldir Ólympíumeistarar. Þau unnu Keum Jii-hyeon og Park Ha-Jun í úrslitum en þau fengu fyrstu silfurverðlaunin.  

Kasakstan fékk fyrstu medalíu mótsins en það voru bronsmedalíur í sömu íþrótt. Alexandra Le og Islam Satpayev lentu í þriðja sæti en þetta er í fyrsta sinn síðan 1996 síðan landið vinnur til verðlauna í skotfimi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert