Norðmenn hefja Ólympíuleikana á sigri

Norðmenn fagna í leikslok.
Norðmenn fagna í leikslok. AFP/Damien Meyer

Karlalandslið Noregs í handknattleik hafði betur gegn Argentínu, 36:31, í fyrsta leik sínum á Ólympíuleikunum í handknattleik í París í dag. 

Norðmenn og Argentínumenn eru með Dönum, Egyptum, Frökkum og Ungverjalandi í riðli en Egyptaland vann Ungverjaland, 35:32 í morgun. 

Tobias Gröndahl var markahæstur í liði Norðmanna en hann skoraði átta mörk. Haralh Reinkind skoraði sex og stjarnan Sander Sagosen þrjú mörk. 

Norðmenn mæta Frökkum í næsta leik en Argentína mætir Ungverjalandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert