Heimsmethafinn ólympíumeistari

Thomas Ceccon er ólympíumeistari í 100 metra baksundi.
Thomas Ceccon er ólympíumeistari í 100 metra baksundi. AFP/Jonathan Nackstrand

Heimsmethafinn Thomas Ceccon varð ólympíumeistari í 100 metra baksundi í París í kvöld. 

Ceccon, sem er ítalskur, kom í mark á tímanum 52 sekúndur en heimset hans er 51,60 sekúndur. 

Kínverjinn Xu Jiayu vann til silfurverðlauna en hann kom í mark á tímanum 52,32 sekúndur og bronsverðlaunin vann Bandaríkjamaðurinn og ólympíumethafinn Ryan Murphy sem kom í mark sjö sekúndubrotum síðar. 

Suðurafrískur Ólympíumeistari 

Tatjana Smith frá Suður-Afríku varð þá ólympíumeistari í 100 metra bringusundi kvenna. 

Hún kom í mark á tímanum 1:05,28 mínútur en hún á einnig ólympíumetið. 

Önnur varð Qianting Tang frá Kína sem kom í mark á tímanum 1:05,54 mínútur. 

Mona McSharry frá Írlandi varð þriðja á tímanum 1:05,59 mínútur. 

Tatjana Smith frá Suður-Afríku kom fyrst í mark.
Tatjana Smith frá Suður-Afríku kom fyrst í mark. AFP/Jonathan Nackstrand
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert