Lærisveinar Dags töpuðu grannaslagnum

Dagur Sigurðsson
Dagur Sigurðsson Kristinn Magnússon

Slóvenar höfðu betur gegn Króötum í annarri umferð riðlakeppninnar í handbolta á Ólympíuleikunum í París. Lokatölur 31:29 Slóvenum í vil.

Króatar fara hægt af stað á Ólympíuleikunum en liðið vann nauman sigur á Japan í fyrstu umferð. Ivan Martinovic, Mario Sostaric og Zvonomir Srna skoruðu fimm mörk hver fyrir Króata. 

Aleks Vkah var markahæstur Slóvena með átta mörk líkt og Blaz Janc. Króatar mæta Þjóðverjum á miðvikudaginn á með Slóvenar mæta Svíum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert