Sigrar hjá Nígeríu og Þýskalandi

Ifunanya Okoro er í leikmannahópi Nígeríu
Ifunanya Okoro er í leikmannahópi Nígeríu Arnþór Birkisson

Nígería sigraði Ástrali og Þjóðverjar unnu Belga í riðlakeppni körfuboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum í París í dag. Ifunanya Okoro, leikmaður Tindastóls, sat á varamannabekk Nígeríu allan leikinn í dag.

Nígería vann þrettán stiga sigur, 75:62, á Ástralíu í B-riðlinum eftir að hafa leitt með sama mun, 41:28 í hálfleik. Nígeríska liðið vann annan leikhluta með tólf stigum og lagði grunninn að sigrinum þar. Ástralir bitu frá sér í þriðja leikhluta og minnkuðu muninn í fjögur stig fyrir lokasprettinn en nær komust þær ekki.

Þjóðverjar unnu sannfærandi fjórtán stiga sigur á Belgum í C-riðli, 83:69. Í hálfleik var staðan 46:25, Þjóðverjum í vil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert