Stórsigur hjá lærisveinum Alfreðs

Alfreð Gíslason ræðir við sína menn á þýska bekknum.
Alfreð Gíslason ræðir við sína menn á þýska bekknum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þjóðverjar sigruðu Japani með ellefu mörkum, 37:26 í handbolta karla á Ólympíuleikunum en leiknum er nýlokið. Þjóðverjar skoruðu fjögur fyrstu mörk leiksins og Japanir sáu aldrei til sólar.

Staðan í hálfleik var 21:10, Þjóðverjum í vil en mest komust þeir í tólf marka forskot í fyrri hálfleiknum. Síðari hálfleikurinn var svipað ójafn en mesti munurinn fór upp í fjórtán mörk, 28:14. 

Renars Uscins skoraði sjö mörk úr jafnmörgum skotum og Juri Knorr bætti við sex í annars jöfnu liði Þýskalands. Andreas Wolff varði sjö skot af sautján fengnum á sig á 29 mínútum.

Naoki Fujisaka skoraði sex mörk fyrir Japan og Hiroti Motoki fimm.

Johannes Golla í baráttunni gegn Japan í dag.
Johannes Golla í baráttunni gegn Japan í dag. AFP/Damien Meyer
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert