Anton í undanúrslit

Anton Sveinn McKee eftir sundið í dag.
Anton Sveinn McKee eftir sundið í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Anton Sveinn McKee er kominn í undanúrslit í 200 metra bringusundi en hann synti á tímanum 2:10,36 og hafnaði í fjórða sæti í undanriðlinum.

Anton átti níunda besti tíma undanriðlana og fór sannfærandi áfram. Undanúrslitin fara fram í kvöld.

200 metra bringusund er aðalgrein Antons og á hann á Íslandsmetið, 2:08,74.

Heimsmethafinn frá Kína, Qin Haiyang varð sjötti í sama riðli á tímanum 2:10,98 og skreið inn í undanúrslit í fimmtánda sæti af sextán.
 

Anton Sveinn McKee stingur sér í laugina
Anton Sveinn McKee stingur sér í laugina mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert