Fimmta gullið hjá Biles

Simone Biles og samherjar hennar í bandaríska liðinu fagna sigrinum …
Simone Biles og samherjar hennar í bandaríska liðinu fagna sigrinum í París í dag. AFP/Gabriel Bouys

Bandaríkin, með Simone Biles í aðalhlutverki, unnu öruggan sigur í liðakeppni kvenna í áhaldafimleikum á Ólympíuleikunum í París í dag.

Biles hreppti þar með sitt fimmta ólympíugull en með henni í liðinu voru Jordan Chiles, Jade Carey og Sunisa Lee.

Ítalía fékk silfurverðlaunin og Brasilía bronsverðlaunin.

Simone Biles leikur listir sínar í París í dag.
Simone Biles leikur listir sínar í París í dag. AFP/Lionel Bonaventure
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert