Signa skítug og keppni frestað

Brú Alexanders þriðja og Signa.
Brú Alexanders þriðja og Signa. AFP/Valentine Chapuis

Karlakeppni í þríþraut á Ólympíuleikunum í París hefur verið frestað vegna mengunar í ánni Signu. Keppni átti að hefjast klukkan tíu í dag en verður frestað framyfir kvennakeppnina á morgun.

Mikil óvissa hefur ríkt um sundhluta keppninnar en æfingar hafa fallið niður undanfarna tvo daga vegna óhreininda í ánni. Bannað hefur verið að synda í Signu undanfarin hundrað ár eða svo en ákveðið var að verja háum fjármunum í að hreinsa ánna fyrir Ólympíuleikana.

Miklar rigningar undanfarna daga hafa sett strik í reikninginn en eins og staðan er núna mun Guðlaug Edda Hannesdóttir keppa fyrir Íslands hönd á morgun og karlarnir í kjölfarið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert