Keppnin fer fram þrátt fyrir áhyggjur

Guðlaug Edda Hannesdóttir mun synda þar sem er bannað að …
Guðlaug Edda Hannesdóttir mun synda þar sem er bannað að synda. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðlaug Edda Hannesdóttir keppir á sínum fyrstu Ólympíuleikum í dag en hún er á meðal þátttakenda í þríþraut í miðborg Parísar í dag.

Mikil óvissa hefur ríkt með keppni Eddu vegna mengunar í ánni Signu þar sem sundhluti keppninnar fer fram. Rigningar síðustu daga hafa lítið hjálpað.

Eftir fund í nótt hefur verið ákveðið að keppnin fari fram samkvæmt áætlun og hefjist klukkan 6 að íslenskum tíma.

Keppnin í karlaflokki átti að fara fram í gær en var frestað vegna mengunar í Signu, en hún fer fram strax að lokinni keppni í kvennaflokki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert