Kyngdi vatni úr Signu: Vonum það besta

Guðlaug Edda Hannesdóttir stingur sér til sunds í Signu í …
Guðlaug Edda Hannesdóttir stingur sér til sunds í Signu í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðlaug Edda Hannesdóttir var á meðal þátttakenda í þríþraut á Ólympíuleikunum í París.

Í þríþraut eru m.a. syntir 1.500 metrar og fór sundkeppnin fram í ánni Signu í miðborg frönsku höfuðborgarinnar.

Mikið hefur verið rætt og ritað um hve skítug Signa er og hvort óhult sé að synda í vatninu. Edda vonar það besta eftir að hún kyngdi óvart vatni á meðan hún synti.

„Ég held það sé óhjákvæmilegt. Sjáum hvernig þetta verður á eftir, ég vona það besta,“ sagði hún brosandi við mbl.is eftir keppnina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert