Óvæntur leikmaður stigahæstur í stjörnuliðinu

Bam Adebayo var stighæstur í liði Bandaríkjanna.
Bam Adebayo var stighæstur í liði Bandaríkjanna. AFP/Sameer Al-Doumy

Bandaríkin fóru létt með Suður-Súdan, 103:86, í körfubolta karla í Ólympíuleikunum í París í kvöld. 

Bandaríkin eru þar með tvo sigra úr tveimur leikjum en Serbía og Púerto Ríkó eru einnig með þjóðunum tveimur í riðli. 

Bam Adebayo skoraði mest í liði Bandaríkjanna eða 18 stig. Kevin Durant skoraði 14 stig og Anthony Edwards 13. 

Bandaríkin mæta Púerto Ríkó í síðasta leik riðilsins en Suður-Súdan mætir Serbíu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert