Simone Biles frá Bandaríkjunum varð í kvöld Ólympíumeistari í fjölþraut í fimleikum á ný þegar hún vann öruggan sigur í keppninni í París.
Biles vann greinina í Ríó fyrir átta árum en dró sig úr keppni á leikunum í Tókýó árið 2021 vegna andlegra erfiðleika.
Hún er sú fyrsta í sögunni sem leikur þennan leik, að endurheimta titilinn í fjölþrautinni eftir að hafa ekki varið hann á næstu leikum á eftir.
Hin 27 ára gamla Biles fékk 59,131 stig og var 1,199 stigum á undan Rebecu Andrade frá Brasilíu sem hafnaði í öðru sæti. Ólympíumeistarinn frá 2021, hin bandaríska Sunisa Lee, fékk bronsið.
Með þessu hafa Bandaríkin hlotið gullverðlaunin í greininni á sex Ólympíuleikum í röð og sjö sinnum samtals.
Biles sjálf er komin með níu ólympíuverðlaun og þar af var þetta sjötta gullið. Hún getur bætt við þá tölu því hún á eftir að keppa til úrslita á einstökum áhöldum þar sem hún keppir í stökki, gólfæfingum og jafnvægisslá.
Tvær konur í sögu leikanna hafa áður unnið gullið í fjölþrautinni á tvennum leikum en það eru Larisa Latynina frá Sovétríkjunum árin 1956 og 1960 og Vera Caslavska frá Tékkóslóvakíu árin 1964 og 1968.