Horfði í átta klukkutíma til að sjá mig í mínútu

Snæfríður Sól Jór­unn­ar­dótt­ir tók þátt í sínum öðrum Ólympíuleikum í …
Snæfríður Sól Jór­unn­ar­dótt­ir tók þátt í sínum öðrum Ólympíuleikum í París. mbl.is/Kristinn Magnússon

Snæfríður Sól Jórunnardóttir lauk leik á Ólympíuleikunum í París á mánudag er hún endaði í 19. sæti í 100 metra skriðsundi.

Fjölskylda Snæfríðar fylgdi henni til frönsku höfuðborgarinnar og studdi hana vel áfram. Hún hefur ávallt fengið góðan stuðning.

„Fjölskyldan hefur verið mér í þessu frá því ég var pínulítil. Mamma hefur þurft að horfa á krakka synda í átta klukkutíma til að sjá mig synda í eina mínútu. Loksins getur hún verið hérna líka,“ sagði Snæfríður við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert